Auglýsing

þórabryndís?

  • Nafn: Þóra Bryndís
  • Staður: Húsavík
  • Atvinna: Vinn hjá N1 á Húsavík og á veitingastaðnum Sölku :)
  • Hjúskaparstaða: með Kidda <3

...

12. janúar 2008 klukkan 02:43

alltaf gaman að blogga svona um allt & ekkert.

ekkert í þessu tilviki.

ég hef lítið gaman af þessu ársbloggi þannig að ég verð að skrifa eitthvað.


ég er hætt í skólanum og verð að vinna í N1 og á Sölku. hlakka svo til að þurfa ekki að vera kvíðin fyrir prófum, verkefnum og

allskonar svoleiðis viðbjóði.

hei Lilja. ertu ekki byrjuð í skólanum?. hvernig gengur?


Við Kiddi erum búin að fjárfesta í ýmislegu síðustu daga.

létum panta fyrir okkur ýmislegt í eldhúsið okkar.

örbylgjuofn, samlokugrill, brauðrist, handþeytara, blandara, handryksugu og
venjulega ryksugu og ýmisleg önnur áhöld.

fengum þetta á svo góðum prís núna. útsölur og svona. þannig að þetta bíður bara eftir okkur uppá háalofti á hjarðarhólnum.

mjög ánægð með þetta allt saman. passar svo vel inní eldhúsið.

ágætt að byrja svona snemma að safna dóti, langar ekki að lenda í því í ágúst að eiga ekki neitt þegar við flytjum,

en við erum ótrúlega heppin að í íbúðinni er allt sem við þurfum. ísskápur, þvottavél, sófi, sjónvarp og allt saman.

Erum að bíða eftir sendingu úr Ikea núna. þar fengum við einmitt ýmislegt á góðum prís. gátum ekkert sleppt þessu.

en sá pakki inniheldur aðallega diska, glös og ýmisleg áhöld í eldhúsið.

þetta er allt saman að verða svo raunverulegt.


Við erum að fara að fá kött inná heimilið núna á sunnudaginn. Perlu litlu.

hún er algjör mús verð ég að viðurkenna. viðurkenni líka alveg að það verður gott að hafa hana til að kúra með ef Kiddi er ekki til staðar.

en ef hún klórar mig þá verðum við sko ekki vinkonur.

æi sjáiði hana. ekki kannski besta myndin en sæt er hún.


ætla að reyna að sofna aftur. er búin að sofa í allt kvöld.

þórabryndís

2007-2008

03. janúar 2008 klukkan 17:50

vá. árið tvöþúsundogsjö er búið.ég man ótrúlega lítið eftir þessu ári, enda flaug það alveg frá mér.veit ekki hvert allur þessi tími fór.
en hann fór í góðar stundir aðallega, ást,söknuð, kvíða, gleði&sorg.
 

Í janúar var ég hrikalegur nördi og gekk í tvo framhaldsskóla. MA og FSH, en það leið ekki á löngu fyrr en ég varð orðinn FSH-ingur, eins ljótt og það nú hljómar. Ég hætti í MA og flutti heim til Húsavíkur, náði öllu nema einu prófi innfrá sem mér þykir alveg afbragðsárangur. 

Í febrúar,, bíddu við! Hvað gerði ég þá?..endalaus skóli og endalaus hamingja.

Í mars hélt skólinn áfram og ég var strax komin með leið á honum og vildi fara aftur á Akureyri.
 

Apríl kom svo loksins og ég varð 17 ára. Ég var nú lítið að taka bílprófið og hélt áfram að labba útum allt.
 

Í maí ákvað ég loksins að taka prófið, en féll og ég varð svo fúl að ég hætti við að taka það strax vikuna á eftir. Prófin voru og stóð ég mig að sjálfsögðu með prýði og náði öllu. Hérna byrjaði sumarið líka, ég byrjaði að vinna í sem afgreiðslustúlka í bakaríinu.
 

Júní var bara nokkuð góður. Ég vann allan daginn frá 9-6 og hafði gaman af. Ég kynntist Hafrúnu krúttlunni minni og við áttum sko eftir að eiga margar góðar stundir saman í bakó, ég, Hafrún, Þórunn og Sigrún.
 

Júlí var eins, nema hvað Kiddi lúlla ákvað að fara til útlanda í 2 vikur og skilja mig eftir heima, ég var lítið sátt þá og er enn sár. Þessar 2 vikur voru alveg hrikalega leiðinlegar og lengi að líða, afhverju er ég svona háð honum? Ég bað ekkert um það...
Daginn sem hann fór út fór ég á Egilsstaði til Lilju minnar, skoðaði nýja húsið hennar og annað ýmislegt í kring. 

Í ágúst fóru Sigrún og Hanna Jóna til útlanda sem skiptinemar, þær voru lítið vinsælar við þá ákvörðun. Ég vann nokkra daga þarna og byrjaði aftur í skólanum, mér til mikillar gleði. Kiddi varð 17 ára og fékk bílpróf 10 ágúst. Strax daginn eftir fórum við á Dalvík á Fiskidaginn mikla. Minnir að hér höfum við líka farið með Lúlla og Grétu í bústað í Munaðarnesi, fórum í borgina og ég eyddi ÖLLU útaf kortinu mínu í Kringlunni, maður er ekkert alltaf þar sko.
  

Í september..gerðist.. ekkert held ég. Man ekki neitt allavega. Endalaus skóli, ritgerðir og verkefni.
 

Í október kom svo að því. 12 október ákvað ég að taka prófið loksins og tók þau svoleiðis í.. rassgatið, 2 og 5 villur í bóklega og 3 í verklega takk fyrir. Loksins fékk ég bílprófið.
Ég byrjaði að vinna sem þjónn á Sölku og kynntist helling af skemmtilegu fólki þar. 

Í nóvember var ég bara í vinnunni og í skólanum. Við Kiddi ákváðum hér að sleppa skólanum á næstu önn, vinna og flytja svo inná Akureyri í ágúst, þá á þessu ári. Pöntuðum okkur líka ferð til útlanda með allri familíunni hans næsta sumar, í júlí.
 

Í desember voru prófin og náði ég öllum. Vinnan tók við í jólafríinu, jólahlaðborð og allt sem fylgir jólunum.
Jólin komu svo auðvitað, fékk margt fallegt og nytsamlegt í jólagjafir, ss. potta og pönnu, ýmisskonar gjafabréf, hálsmen, tösku og fleira. Áramótin komu svo loksins þó að Lilja og Fannar hafi ekki verið hér og nú er komið árið 2008 og ég er að verða 18 ára, hallelúja. 

Árið 2008 á eftir að vera gott ár. Það á margt eftir að gerast,bæði hjá mér og öðrum.
Ég verð sjálfráða, ég fæ að fara með krúttinu mínu til útlanda í 2 vikur, ég flyt inn á Akureyri og þarf að fara að sjá um mig alveg sjálf og ég hlakka svo tiiil. 
Jæja. Pabbi er að steikja hambó.
Eru það svo bara Egilsstaðir á morgun ???
 
-þórabryndís  

gleðilegt ár

01. janúar 2008 klukkan 17:43
GLEÐILEGT ÁR ALLIR SAMAN **
Ég kem svo með "ársins" bráðlega. bíðið bara.
áramótakveðja og baráttukveðjur inní nýja árið. 
-þórabryndís
happy-new-year05.jpg

27des..

27. desember 2007 klukkan 18:21

hæjó.

aðfangadagur búinn og ég með kvef. hverjum ætli það sé að kenna?


ég fékk alveg helling í jólagjöf. Kiddi ástin gaf mér svo bjútífúl hálsmen, takk;*

við kiddi fengum svo saman fullt af Húsavíkurgjafabréfum sem fara í að kaupa e-ð fallegt í búið okkar.

fékk gjafabréf í metro og hilmu, pott&pönnu, kökukefli og allskonar áhöld. takk allir :) þetta á sko eftir að koma sér vel.

ég er bara búin að vera á fullu í vinnunni, vinna nánast allt jólafríið, enda verður buddan þykk í janúar, vonandi.

ég er búin að éta svo mikið yfir jólin að ég verð held ég bara að kaupa kort í töff eftir áramótin, annað gengur ekki.


Lilja og Fannar eru búin að vera hjá okkur núna síðan á þorláksmessu. gaman að vera með þeim svolítið þar sem þau búa lengst í burtu.

..ætlaði bara að láta vita af mér, ég er á lífi :)

takk allir sem sendu jólakort til mín.


þórabryndís

**

03. desember 2007 klukkan 18:41

eitt blogg í tilefni þess að það er bara einn dagur eftir af skólanum.


ég er búin að vera svo hrikalega góð við mig í dag. svaf út í morgun. fór í nudd og var að enda á því að kaupa mér

flottustu stígvél sem hafa sést hér á landi. fannst ég eiga það skilið ....


er að reyna að setja mig í stellingar fyrir prófin. þetta er ekki alveg að koma hjá mér.

það er svo jólalegt og allir að skreyta núna. vil vera með í því. nei,,, við erum sett inn með bækurnar!

er voðalega lítið stressuð eitthvað. en það kannski kemur á morgun.

fyrsta prófið á miðvikudaginn, landafræði. svo frí á fimmtudaginn, þá ætla ég að vera meira góð við sjálfa mig og skella mér í litun og plokkun.

Mig langar svo að komast inná Akureyri, versla mér jólaföt og hafa kósí. fæ útborgað á morgun þannig að ég get farið að skella mér...


var að vinna á jólahlaðborðinu um helgina. hrikalega gaman að þeysast um allt, verð reyndar að viðurkenna að ég fann fyrir smá þreytu í gær.

aftur næstu helgi og ég hlakka eiginlega bara til.

en kominn matur.

blessó

:)

24. nóvember 2007 klukkan 22:10

afhverju var einhver elísabet úr mosfellsbæ að hringja í mig. síminn var án hljóðs þannig að ég svaraði ekki.

kannski þurfti hún að segja mér e-ð merkilegt. eða ekki.


ég get ekki hætt að skoða ikea.is. held að ég sé að gera kidda hræddan með því að skoða þetta allt saman. núna hættir hann við að vilja flytja með mér. og ástæðan verður að ég var alltaf að skoða eitthvað dót í íbúðina okkar.

hann segist ekkert vera hræddur. þessi elska.

ég bara get ekki hætt að skoða. glös,hnífapör,sófi,kertastjakar,pottar,lampi,stofuborð, myndir á veggi.. hjááááálp.

æji þetta er svo gaman. veit samt ekkert hvort ég sé e-ð tilbúin að flytja inn. með strák. æjæ.


ég er e-ð svo löt og asnaleg þessa dagana. prófin ERU AÐ KOMA.

bara næsta vika og svo tveir dagar minnir mig. sjitt.

ég er mesti tossi í heiminum. um daginn fékk ég reyndar að heyra frá kennara hvað ég ætti auðvelt með að læra. get ekki verið sammála. verð að taka mig til í fésinu og læra fyrir þessi próf. þarf ekkert að vera erfitt að taka próf.

maður heldur það bara. úff. get ætla skal :)


það er allt að verða vitlaust í skólanum núna. fínt svona rétt fyrir prófin. kennararnir bara funda og funda.

og allt kemur í fréttunum. sá í fyrsta skipti í gær hvað fréttamenn eru dónalegir og eiginlega bara frekir, myndatökumennirnir allavega.

er ekki að fíla þetta lið.


tjörnes í fyrramálið. góla eins og enginn sé morgundagurinn.

er þetta ekki að verða komið gott?

kiddi litla ást er að koma heim úr vinnunni og mamma að græja einhvern doritossala rétt. verð bara að hætta.


Lilja, ég hlakka svoooona mikið til að hitta þig. hvenær komiði? ég verð að fá að knúsa þig ***

ég á skilið kvitt núna


þórabryndís-ikeasjúka

jólinjólin?

18. nóvember 2007 klukkan 15:58

Það eru í alvöru að koma jól.

reyndar ýmislegt sem á eftir að gerast fyrir þau.

prófin byrja eftir nokkra daga. er að byrja að læra. þó ég ætli ekki í skóla næstu önn þýðir það ekki að ég ætli ekki að taka þessa með stæl :)


ég er byrjuð að hlusta á jólalög. er búin að downloada alveg böns af lögum.

það helsta er diskur með Celine Dion, jóladiskur. hlusta ekki á annað þessa dagana.

ég er að rífa mig uppúr smá veikindum. mikil stífla og kuldi búinn að vera síðustu daga.

Jólin eru svo að koma. þarf að fara að hugsa um jólagjafir, jólakort og allt saman. það er svo gaman.

hlakka svo til þegar allt verður skreytt. hlakka svo til að fara á akureyri og versla, skoða jólaljósin og fara á Bláu könnuna og fá mér kakó.

það verður best.

á ég að senda jólakort? mig langar það, en nenni ég að skrifa á þau? myndir þú vilja fá jólakort frá mér? :)


ætlaði ekkert að blogga. fannst bara leiðinlegt að sjá þetta appelsínugula blogg ...

takk og bless


...

11. nóvember 2007 klukkan 16:32

er orðið of langt síðan?

það er allavega komið að því..

ég er búin að ákveða ýmislegt sem ég held að eigi eftir að gera mér gott. kannski er þessi ákvörðun hjá mér algjört bull, en mér finnst hún rétt. ég er ekki að gera þetta því að ég get það ekki. ég er að gera þetta bara fyrir mig. því að ég er jú í skólanum fyrir mig, engann annan.

ég er búin að ákveða að hætta í skólanum og fara að vinna.

mér er ekki að ganga illa í skólanum. ég get alveg lært. ég er ekki með lágar einkunnir, er tvisvar búin að fá hæstu einkunn af öllum í faginu á þessari önn.

ég ætla að vinna eftir áramót og næsta sumar. eftir sumarið ætla ég að flytja inná akureyri með kidda. hann er næstum því ákveðinn í að fara í skóla en ég er ekki búin að ákveða mig. kannski ætla ég að vinna og taka tvo til þrjá áfanga í fjarnámi frá VMA. held að það sé ágæt hugmynd.

alveg síðan ég hætti í MA hefur mig langar til að fara inneftir aftur. og það er að fara að gerast. í ágúst á næsta ári erum við kiddi búin að vera saman í næstum þrjú ár og mér finnst við treysta hvort öðru það vel til að geta búið saman. við verðum bæði orðin 18 ára og við ættum að geta séð um okkur sjálf.


Við kiddi höfum lengi talað um að fara til útlanda og ætluðum við að fara næsta sumar. en einhvernveginn hættum við, við það.

um daginn var ég að ná í kidda heim til sín og hann sagði mér að hann væri að fara út með fjölskyldunni sinni í sumar og hann sagði að það væri verið að panta ferðina NÚNA.. og spurði hvort ég vildi ekki koma með, svona því að við ætluðum alltaf að fara e-ð út. ég fékk semsagt eiginlega engan tíma til að ákveða mig...

og núna er ég að fara með þeim út í sumar, til þýskalands, sviss og austurríkis og ég hlakka mikið mikið til.


núna eru bara 3 vikur og einhverjir dagar eftir af skólanum. ég hlakka til að klára þessa önn. ég veit að það bíður mín eitthvað miklu skemmtilegra.

er enginn sammála mér? það er ekkert að gera í þessum skóla. sumir kennarar eru jú góðir en sumir eru bara varla að kenna, eru bara þarna.

æi.. ég er kannski ein um að finnast þetta. finnst ekkert skemmtilegt að vera í skóla og læra ekki neitt.

mamma tók ótrúlega vel í þetta allt saman. vonandi gera aðrir það líka !!


þá er þetta komið. fjúff.

þetta er orðið ágætt. takk

...

01. nóvember 2007 klukkan 20:35

hellú

bara að koma með eitt stutt svona í tilefni þess að talvan mín er í lagi, var semsagt að koma úr viðgerð!

sit bara hérna og er að horfa á MTV verðlaunin, var að éta pizzu og hef það gott.

pabbi og hilmar á akureyri að sækja múttu sem átti einmitt flug kl hálf 7 en er ekki enn farin í loftið. eitthvað óveður þarna fyrir sunnan.


allt gott að frétta bara.

ég byrjaði að vinna á Sölku í síðstu viku og það er bara rosalega fínt þó ég kunni ekkert að halda á 3 diskum :)

staffapartý í gær og það var bara stuð. allir í singstar og mikið fjör. einhvernveginn unnu strákarnir oftar en við stelpurnar,, skiljum þetta ekki alveg ;)

skólinn gengur bara. það eru sko alveg að koma próf.. ekki alveg tilbúin í þetta.

einhvernveginn er maður ekkert að fylgjast með í skólanum.. aaaldrei í landafræði, þar erum við dömurnar meira að taka ljótar myndir í krúttinu hennar Unnar:)

maður skilur ekkert í stærðfræði, samt var ég hæst um daginn í prófi! skil það nú ekki...


1 nóvember í dag og ég byrjaði að hlusta á jólalögin.. ekkert snemmt er það?

en mtv er að halda áfram.

blessó

?

20. október 2007 klukkan 19:26

það er kominn laugardagur.

þrír dagar eftir af fríinu.

ég vildi að það væri alltaf frí, ég nenni þessu ekki lengur.

hver vill vera í skóla bara til að vera það? vilt þú það? ég segi nei takk.

samt er ég það.


ég er búin að nota fríið mitt í að gera ekki neitt. og stefni á að halda því áfram.

vinna í fyrramálið en svo ekkert meir. bara bíða þangað til ég þarf að mæta í skólann aftur.

hvað á ég að gera í kvöld? á ég að kveikja á kertunum mínum og hafa kósí. læra kannski smá í ritgerðinni minni..

á ég að biðja pabba um bílinn og bjóða kidda með á rúntinn?

á ég að fara og kaupa mér popp og horfa á eitthvað í sjónvarpinu?

hvað á ég að gera? þoli ekki húsavík á svona frídögum. maður gerir aldrei neitt. sefur bara.


ég ætla að sækja geisladiskana mína og hlusta á gömul góð lög.

gott laugardagskvöld? hélt ekki.


þórabryndís